Myndir

# Edda Björk | 17.03.2006 kl. 20:54

Ég skellti inn nokkrum myndum frá London ferðinni í myndaalbúmið.

Ummæli (0)

Halló halló

# Edda Björk | 11.02.2006 kl. 10:36

Eins og sést þá erum við hætt að nenna að uppfæra þessa síðu okkar. Búið að vera nóg að gera upp á síðkastið og verður áfram. Skelltum okkur á skíði tvo sunnudaga í janúar til Austurríkis, fórum á þorrablót og stammtisch, James bauð okkur í mat, lágum smá í flensu og svo þess á milli hefur Fúsi verið að læra á fullu og ég að vinna lengur. Fúsi er núna í próflestri enda lauk kennslu vetrarannarinnar í gær og 3 próf strax eftir helgi. Svo eru 2 próf aftur í mars og sumarönnin byrjar aftur í apríl. Tíminn á milli verður notaður í lokaverkefnið.

Næstu helgi förum við svo að hitta pabba og mömmu á Ítalíu , en pabbi ætlar að fagna stórafmæli sínu á skíðum í Madonna di Campiglio. Í byrjun mars liggur svo leiðin til London. Sem sagt margt skemmtilegt framundan.

Við munum skella inn myndum á myndasíðuna með skíðamyndum og fleiru á næstunni. Til að fá lykilorð inn á myndasíðuna má senda okkur tölvupóst: sigfus hjá oddsson.com eða eddab hjá oddsson.com.

Bis später.

Ummæli (4)

Ísland, jibbííí

# Edda Björk | 22.12.2005 kl. 21:21

Síðasta helgi var mjög skemmtileg. Hún byrjaði á jólapartýi í vinnunni sem byrjaði á glühweini og mat á jólamarkaðsstemmningu úti á bílastæði og endaði svo í trjútti inni í fundarsalnum. Á laugardag skelltu Fúsi og Davíð sér í skvass og komu svo í heimabakaða pizzu á eftir. Um kvöldið bættustu svo strákarnir, Indriði, Maggi, Siggi og Ögmundur í hópinn og endaði þetta í fínasta partýi. Enduðum kvöldið á diskótekinu 4004. Á mánudag vorum við svo enn að jafna okkur eftir helgina enda hálfpartinn með harðsperrur eftir allan dansinn.

Í fyrramálið leggjum við í'ann til Frankfurt þaðan sem við fljúgum heim á klakann. Annað kvöld er stefnan sett á að sýna sig og sjá aðra á laugarveginum í smá þorláksmessugöngu. Sjáumst bara.

Gleðileg jól.

Ummæli (0)

Meira jólastúss

# Edda Björk | 15.12.2005 kl. 17:49

special_surprise.jpgSíðustu vikur höfum við haft nóg fyrir stafni. Það er búið að vera frekar mikið að gera í vinnunni núna í desember og þar fyrir utan hef ég reynt að jólast aðeins. Það er líka nóg að gera í skólanum hjá Fúsa, en hann er að fara í miðannarpróf á morgun og á mánudag þarf hann að skila inn uppkasti af ritgerð sem hann þarf svo að halda fyrirlestur um í janúar.
Ég er búin að reyna að standa mig í húsmóðurshlutverkinu og bakaði aðra sort af smákökum (sem við átum svo upp á mettíma). Nú verður ekkert bakað meira og átið sparað fram að jólum enda er ekki gert ráð fyrir mánaðar löngum jólum (=stanslausu áti) í Body for Life prógramminu hans Fúsa. Í dag tók ég mér annars frí í vinnunni til að klára jólagjafakaupin og komast í jólaskap. Það tókst nú bara nokkuð vel, enda næstum allar jólagjafir komnar í hús og jólatónlistin komin í Ipod-inn. Á morgun er svo stefnan sett á jólapartý í vinnunni :)

Ummæli (1)

Smá jóla jóla

# Edda Björk | 30.11.2005 kl. 21:46

jolaskraut.jpg
Síðustu helgi opnuðu flestir jólamarkaðarnir hérna í München. Við Fúsi skelltum okkur í bæinn á laugardag og kíktum í nokkrar búðir í jólagjafahugleiðingum og skoðuðum mannlífið í leiðinni enda alveg troðið af fólki. Kíktum svo í afmæli til Sigga um kvöldið ásamt nokkrum Íslendingum til viðbótar. Á sunnudag bakaði ég eina smákökusort.. sem var nú reyndar fljót að hverfa ofan í okkur, svo það verður eflaust bakað eitthvað í viðbót þegar jólin fara að nálgast meira.

Á mánudag var mér ásamt nokkru (ekki fastráðnu) samstarfsfólki boðið út að borða í hádeginu. Við fórum á mjög fínan ítalskan veitingastað þar sem Allianz splæsti á okkur þríréttaðri máltíð ásam léttvíni sem sárabót fyrir að hafa ekki fengið jóla bónus eins og fastráðna fólkið. Fílíngurinn var því bara nokkuð góður fram eftir degi, enda allir nokkuð "léttir á sér" eftir vínið ;o)

Ummæli (4)